Viðskiptaskilmálar
Almennt
Allar upplýsingar á vef Járn og Glers, þmt. Birgðastaða, verð osfrv. eru birt með fyrirvara um villur. Járn og Gler áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, breyta afhendingartíma osfrv. Varan er eign Járn og Glers þar til hún er að fullu greidd. Af vasnkilum reiknast dráttarvextir frá gjalddaga.
Afhending vöru
Járn og Gler dreifir vörum til fyrirtækja sem eru í reikningsviðskiptum við fyrirtækið og eru á höfuðborgarsvæðinu. Öllum öðrum pöntunum er dreift af Póstinum. Gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vöru frá TVG-Express. Skilmálar TVG-Express eru aðgengilegir á vefsíðu fyrirtækisins.
Skilafrestur
Kaupandi hefur 30 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi og í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með.
Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og/eða viðgerð í samræmi við lög um neytendaábyrgð.
Netverð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.
Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.
Sendingarkostnaður
Sendingarkostnaður er birtur við pöntun vöru og fer eftir afhendingarmáta sem viðskiptavinur velur.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Varnarþing
Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um neytendasamninga nr 16/2016 og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 16/2016 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað.
SKILAREGLUR
Ef skila á vöru í verslun Járn og Glers skal hafa samband við næsta starfsmann þegar komið er inn í verslunina. Einnig er hægt að senda vöruna með flutningsaðila í verslun Járn og Glers. Kostnaður (svo sem sendingar kostnaður) við að skila vörunni er greiddur af kaupanda.
Við vöruskil skal framvísa reikning fyrir vörukaupunum.
Seljanda er heimilt að meta hvort varan sé í söluhæfu ástandi þegar tekið er við henni aftur. Vara skal vera í upprunalegu ástandi til þess að hægt sé að skila henni, þ.e. að umbúðir og vara séu óskemmd, fylgihlutir og leiðbeiningar séu með vörunni ef um slíkt er að ræða.
Séu vöruskil innan 30 daga frá dagsetningu kassakvittunar, er gefin út inneignarnóta eða vara eindurgreidd inn á greiðslukort viðkomandi.
Skilaréttur gildir ekki um vörur sem keyptar eru á útsölu.
Starfsmönnum er heimilt að neita móttöku skilavöru og endurgreiðslu á vöru ef kassakvittun er ekki framvísað.
Skil á vörum sem keyptar eru í gegnum viðskiptareikning eru kreditfærð á viðkomandi viðskiptareikning.
Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.